Flokkar

 

Áratugur

Sólarauga

Sólarauga

Jón Gunnar Árnason


  • Ár : 1982
  • Hæð : 700 cm
  • Breidd : 500 cm
  • Grein : Skúlptúr
  • Undirgrein : Málmskúlptúr

Verkið er staðsett við Mjódd í Breiðholti. Verkið er í Mjódd í Breiðholti og er gert úr löngum stálörmum sem teygja sig í allar áttir. Í miðju verksins er spegilslétt hringlaga stálplata sem tekur við geislum sólarinnar og varpar þeim á gangstéttina og umhverfi verksins. Verkið er byggt á kosmískri hugmyndafræði og eru áhrif sólarinnar stór þáttur í því að njóta verksins. Sólargeislar endurkastast inn í rýmið þar sem það stendur og er það talið undirstrika formbyggingu og tilgang verksins.

Mitt safn 

Fleiri verk eftir sama listamann