![](https://safneign.listasafnreykjavikur.is/sites/default/files/styles/lsr_smallerphoto/public/lsr_collection/5/1/a//lsr_photo_smallerphoto_1377693936_ea1a5ad5fd8a8cd438b2912983198afc.jpg?itok=XzwCtb4q)
Gosbrunnur
Helgi Þorgils Friðjónsson
- Ár : 2011-12
- Hæð : 160 cm
- Breidd : 80 cm
- Grein : Skúlptúr
- Undirgrein : Leirmynd
Helgi Þorgils hefur skapað persónulegan táknheim þar sem nokkurs konar sjálfsmynd er sett í margháttað samhengi. Manneskjan er gjarnan nakin innan um gróður, dýr og fugla eða í stellingum sem kallast á við þekkt minni úr listasögunni. Helgi Þorgils yfirfærði myndheim sinn í skúlptúr á sýningu í Gerðarsafni árið 2013 þar sem sjá mátti m.a. þennan gosbrunn. Í verkinu og í tveimur skissum að því má sjá hvernig mannslíkami blandast sel og svani.
Veistu meira? Líka við Mitt safn