Uppgröftur
Hulda Stefánsdóttir
- Ár : 2006
- Hæð : cm
- Breidd : cm
- Grein : Innsetning
- Undirgrein : Blönduð tækni
Á veggnum hangir klasi verka sem í fyrstu virðast keimlík. Þegar betur er að gáð má sjá að þau eru úr ólíku efni og unnin með mismunandi hætti, ýmist málverk eða ljósmyndir. Þar á sér stað hófstillt samspil sem byggist á örþunnri lagskiptingu frá hvítum bakgrunni veggjarins, gegnum undirlegsefni hverrar myndar og að yfirborðinu.
Veistu meira? Líka við Mitt safn