Vopn byltingarinnar 12
Spessi (Sigurþór Hallbjörnsson)
- Ár : 2010
- Hæð : 58 cm
- Breidd : 78 cm
- Grein : Ljósmyndun
- Undirgrein : Litljósmynd
Þessi ljósmynd er hluti af myndaröðinni Vopn byltingarinnar. Hún sýnir búsáhöld á hvítum bakgrunni. Slíkt er alvanalegt í kyrralífsverkum. Það er ekkert merkilegt við þessa potta og pönnur, skeiðar og ausur, nema hvað allir þessir hlutir eru beyglaðir. Þetta eru vopn búsáhaldabyltingarinnar. Þau hafa fellt ríkisstjórn og eru nú stöðug áminning hverri nýrri stjórn um að missa ekki sjónar á yfirlætislausum, efnislegum grundvelli lífsins.
Veistu meira? Líka við Mitt safn