Mynd af myndhöggvara sem höggmynd (I)
Hreinn Friðfinnsson
- Ár : 2014
- Hæð : cm
- Breidd : cm
- Grein : Fjöltækni
- Undirgrein : Myndbandsverk
Verk Hreins samanstendur af fimm myndbandsverkum og hvert þeirra sýnir listamanninn Kristinn E. Hrafnsson við einfalda, hversdagslega iðju á ýmsum stöðum í Reykjavík (hoppa á trampólíni, róla sér á leikvelli, renna sér á skautum, hekla og spreyta sig á húlahring). Hvert myndband ber sérheiti sem byggist á eðlisfræðiformúlu, til dæmis um hröðun eða pendúlhreyfingu.
Veistu meira? Líka við Mitt safn