Flokkar

 

Áratugur

Streymi tímans

Streymi tímans

Sólveig Aðalsteinsdóttir


  • Ár : 2012
  • Hæð : cm
  • Breidd : cm
  • Grein : Skúlptúr
  • Undirgrein : Blönduð tækni

Verkið er staðsett í Litluhlíð. Þetta óvenjulega umhverfisverk felst í því einu að lyfta hulunni af náttúrusögu staðarins. Fyrir óralöngu huldi ísaldarjökull þetta svæði en tók síðan að hopa fyrir um tólf þúsund árum og er nú horfinn með öllu. Þegar fargi jökulsins létti af landinu tók það að rísa og jarðvegur, dýr og gróður sneri aftur. Þá fór þetta holt, eins og önnur svæði sem jökullinn yfirgaf, að gróa upp þar til ekkert var eftir til minningar um jökulinn nema einstök hvalbök, en svo kallast jökulsorfnar klappir sem skjóta kryppunni upp úr möl og gróðurþekju eins og hvalir á sundi. Listamaðurinn bætti engu við á staðnum og gerði engar breytingar á klöppunum heldur lét sér nægja að afhjúpa þær. Nú þegar gróðurhulunni hefur að nokkru leyti verið svipt af holtinu má sjá merki þess hvernig jökullinn braut sér leið, muldi björg, slípaði klappir og risti í þær rákir með möl og villugrjóti og þessar rákir marka stefnuna á för hans til norðvesturs. Við útilistaverk Sólveigar má sjá fjallahringinn án þess að færa sig um set. Þetta er einn fárra staða í Reykjavík þar sem slíkt er hægt og þar er kjörið næði til að skoða stjörnur og norðurljós, íhuga tímans þunga nið og síkvikt lifandi land okkar. Líkt og hér í Litluhlíð glímir Sólveig gjarnan við það í verkum sínum að skrásetja stað og stund. Tími og taktur hins hversdagslega lífs, þau viðfangsefni eru listamanninum jafnan hugleikin og þau knýr hún áfram með látlausum aðferðum sínum. Frá 1980 hefur Sólveig sýnt myndlist sína á fjölmörgum einka- og samsýningum hérlendis og erlendis.

Mitt safn 

Fleiri verk eftir sama listamann