Flokkar

 

Áratugur

Sjónvarpsávarp forsætisráðherra, Geirs H. Haarde, 6.10.2008

Sjónvarpsávarp forsætisráðherra, Geirs H. Haarde, 6.10.2008

Hlynur Hallsson


  • Ár : 2009
  • Hæð : 84.51 cm
  • Breidd : 59.4 cm
  • Grein : Grafík
  • Undirgrein : Offset prentun

Þetta verk er skylt öðru verki eftir Hlyn, verkinu Ríkisstjórnir í mörgum löndum... Tvíþætt verkið Hlyns spratt upp úr eftirköstum efnahagskreppunnar árið 2008. Í spreyjuðum veggtexta og plakati er vitnað beint í frægt sjónvarpsávarp þáverandi forsetisráðherra þegar komið var að ögurstundu í rekstri bankakerfisins á Íslandi. Tungumál og samskipti eru lykilatriði í listsköpun Hlyns og undirstaða að þeirri hugmyndalegu og markvissu nálgun sem listamaðurinn notar til að fjalla um samfélagsmál og stjórnmál í víðara samhengi. Að auki eru algeng viðfangsefni í verkum hans tengsl, pólitík og persónulegt líf listamannsins.

Mitt safn 

Fleiri verk eftir sama listamann