Sköpunarverk I
Kristín Gunnlaugsdóttir
- Ár : 2013
- Hæð : 420 cm
- Breidd : 370 cm
- Grein : Textíll
- Undirgrein : Vefnaður
Sköpunarverk, þar sem kvenorkan er sýnd á beinskeyttan hátt og gerð að háleitri orkuuppsprettu. Hér er farvegur fæðingar,þetta litla líffæri svo marg misnotað og útjaskað í klámvæðingu nútimans, sýnt sem kjarni eða miðja, uppspretta krafts sem leiðir að miðju lífsins og þess sem er satt, hvort sem er í manneskjunni sjálfri, (karl- og kvenkyns), eða í náttúrunni. Hér er horft niður i eldgosid sjalft, orku þessa lands, uppsprettu hins sanna og oft varnarlausa i hverri manneskju. Hér er sagt JA vid þvi ad vera manneskja.
Veistu meira? Líka við Mitt safn