Án titils
Margrét H. Blöndal
- Ár : 2019
- Hæð : 35 cm
- Breidd : 25 cm
- Grein : Teikning
- Undirgrein : Blönduð tækni
Teikningar Margrétar eru fínlega unnar, meðal annars með ólífuolíu og litadufti. Stundum er hægt að greina hvað er á teikningunni og stundum ekki. Margrét vinnur yfirleitt út frá einhverju kunnuglegu í byrjun en í ferlinu leysist það upp og verður sjálfstætt. Verkin segja okkur ekki síður ýmislegt í gegnum ferli, efnisval, lit og form heldur en af hverju myndin er.
Veistu meira? Líka við Mitt safn