Flokkar

 

Áratugur

Hyrningar VI

Hyrningar VI

Hallsteinn Sigurðsson


  • Ár : 1975
  • Hæð : 310 cm
  • Breidd : 230 cm
  • Grein : Skúlptúr
  • Undirgrein : Málmskúlptúr

Verkið er staðsett á horni Langholtsvegs og Álfheima. Hyrningar er heiti nokkurra verka eftir Hallstein sem standa á nokkrum stöðum í borginni, þ.á m. í Hallsteinsgarði í Grafarvogi. Eitt er varðveitt innanhúss þar sem því er ekki ætlað að standa utandyra. Öll tilheyra þau sömu verkaröð þar sem í grunninn byggja þau á áþekkum formum. Hins vegar eru þau útfærð í ólík efni, stein, málað eða ómálað stál. Léttleika, leik og frjóa myndhugsun er að finna í verkunum og er innra rými þeirra opið, afmarkað með einföldum en skýrum ramma.

Mitt safn 

Fleiri verk eftir sama listamann