Flokkar

 

Áratugur

Shame on You, Rovaniemi

Shame on You, Rovaniemi

Þorvaldur Þorsteinsson


  • Ár : Án ártals
  • Hæð : cm
  • Breidd : cm
  • Grein : Fjöltækni
  • Undirgrein : Myndbandsverk

Þegar Þorvaldi Þorsteinssyni var boðið að sýna á samsýningu í Rovaniemi datt honum í hug að færa íbúum þar kveðju íslensks jólasveins. Sá kemur ekki upp orði fyrir gráti og ekka. Borgaryfirvöld í Rovaniemi hafa nefnilega hlutast til um heimkynni hans og komið honum í uppnám. Hér á landi hafa jólasveinarnir þrettán um aldir búið til fjalla á íslenskum öræfum. Rovaniemi er borg í Finnlandi, staðsett norðarlega í Lapplandi rétt við heimskautsbaug. Í alþjóðlegu markaðs- og kynningarátaki var ákveðið að lýsa því yfir að þar væri hið eina og sanna heimili jólasveinsins. Þar er nú stunduð mikil ferðaþjónusta í kring um þessa hugmynd. Hundruð þúsunda ferðamanna koma þangað árlega og tekið er á móti ótal bréfum til jólasveinsins sem þangað berast.

Mitt safn 

Fleiri verk eftir sama listamann