Flokkar

 

Áratugur

NC (Ég er í hættu og þarfnast hjálpar tafarlaust)

NC (Ég er í hættu og þarfnast hjálpar tafarlaust)

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir


  • Ár : 2019
  • Hæð : 55 cm
  • Breidd : 48 cm
  • Grein : Annað
  • Undirgrein : Lágmynd

Anna Júlía hefur gert nokkur verk þar sem hún ímyndar sér að umhverfið sé að reyna að senda manninum skilaboð. Verkin eru steyptar lágmyndir sem minna á steingervinga. Titlar verkanna vísa í kallmerki í Mors-kóða þar sem tákn eru mynduð með stuttum og löngum einingum. Í þessu verki má lesa: "Ég er í hættu og þarfnast hjálpar tafarlaust.“ Anna Júlía bendir á að kannski hefur maðurinn tapað hæfileika til að lesa í og skilja náttúrulegt umhverfi sitt.

Mitt safn 

Fleiri verk eftir sama listamann