![](https://safneign.listasafnreykjavikur.is/sites/default/files/styles/lsr_smallerphoto/public/lsr_collection/3/9/6/lsr_photo_smallerphoto_1383682220_a1bd92131bf59b4ed97b57b378475725_0.jpg?itok=laGtgM4A)
Sonatorrek (stækkun)
Ásmundur Sveinsson
- Ár : 1948
- Hæð : 400 cm
- Breidd : 500 cm
- Grein : Skúlptúr
- Undirgrein : Steinskúlptúr
Verkið er staðsett í höggmyndagarði við Ásmundarsafn. Egill Skallagrímsson varð að sjá á bak tveimur sonum sínum í dauðann og var harmur hans þungur. Það er því varla tilviljun að Ásmundur velur sér kvæði Egils, Sonatorrek, að viðfangsefni árið 1948, ári eftir að dóttir hans fórst í bílslysi. Verk Ásmundar sýnir þá stund þegar Þorgerður dóttir Egils réttir honum ljóðahörpuna og hvetur hann til að yrkja sig frá sorginni. Á sama hátt má leiða að því getur að yngri dóttir Ásmundar og listsköpun hans hafi verið honum sú huggun sem gerði honum kleift að sigrast á sorginni. Í Sonatorreki Ásmundar er því í senn að finna víðfrægt bókmenntaminni og djúpa skírskotun til eigin reynslu.
Veistu meira? Líka við Mitt safn